Steisarinn í hnotskurn;)

velkomin(n) á svæðið þar sem Steisarinn ræður ríkjum;)

05.07.2008 13:04:14 / steisarinn

meira nýtt!!!

komin inn smá færsla á vefdagbókina og nokkrar nýjar bumbumyndir;)
http://barnaland.is/barn/72383/
kv ása birna og bumbuskonsan...8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 13:29:00 / steisarinn

nýtt!!!!

komnar nýjar myndir og ný færlsa í vefdagbók á http://barnaland.is/barn/72383/
endilega kíkið á það;)
kv ása birna og bumbudýrið:lol:



» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 22:06:34 / steisarinn

Heimasíða barnsins


http://barnaland.is/barn/72383/ 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 15:48:50 / steisarinn

hnakkó ofl..

hæ hæ allt gengur eins og í sögu hjá okkur..
helgin 21-23 mars fórum við á föstudeginum á árshátíð hjá Grand Hótel og var þetta ein sú skemmtilegasta sem ég hef farið á.. gunni helga var veislustjóri og fór á kostum alveg hreint.. hann tók Bjarna alveg fyrir og skaut á hann heilan helling svo var farið í leik og átti einn aðili frá hverju borði að fara og sá sem fór frá okkar borði var í 2 sæti han átti að ná i eitthvað á borðið til okkar sem þau nefndu og það síðasta sem hann átti að ná í var brjóstarhaldari og herra buxur og við með okkar keppnisskap drifum okkur úr sojörunum bara og stóð bjarni eftri á næsrbuxum og í jakka þvi áður hafði hann farið úr skyrtunni og ég brjóstarhaldaralaus í flegnum hlýrakjól 8)
bara snilld...
fórum svo daginn eftir í afmæli til múttu á krókinn og las ég smá sögu um þá gömlu og var vel tekið það kom rúta frá húsavík með fullt af liði og held ég að þetta hafi verið eitthvað yfir 100 manns.. mjög skemmtilegt og vel heppnað kvöld:lol:

jæja fórum í hnakkaþykktarmælingu í morgun og allt var í góðu lagi barnið ullaði bara á okkur hehe og við sáum það drekka legvatnið svo klappaði það saman lófunum bara sætt;)
svo er næsta skoðun 10 apríl get ekki beðið8|
er núna með Söndru í liðveislu og er að spa i að fara að horfa á Nemo með henni;)
byð að heilsa í bili..
kv ásabirna og bumbuskonsan8)



» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 19:26:56 / steisarinn

bumbuskonsa

 komiði sæl og blessuð Berglind er ekkert búin að láta í sér heyra svo það kanski liggur ekkert á þessari frétt hehe;)

mikið búið að gerast og mikið í vændum ...
fórum norður á krókinn síðustu helgi og lágum við í afslöppun mestmegnis af helgina sökum flensu sem herjaði á fjölskylduna en erum svona öll að koma til núna ..
við náðum nú samt að kíkja smá í sund og ísrúnt í varmahlíð og svona svo létum við baraþau á hótel mömmu stjana við okkur fjölskyldumatur á föstudeginum þar sem allir voru saman komnir mjög langt síðan það hefur gerst svo það var bara mjög gaman;)
fengum geggjað veður alla helgina og láum svo bara í meiri flensu í vikunni þegar við komum heim:^)
vinnuhelgi þessa helgi og næsta vika svo erum við að fara aftur norður næstu helgi þar sem móðir mín verður 60 ára gömul kellingin.. og ætlar að vera með heljarinnar veislu á Mælifelli og dansleik á eftir með Geirmundi gamla8)
við ætlum að fara bara á laugardeginum þar sem við erum að fara á árshátíð hjá Grand Hótel á föstudeginum þannig að það verður bara stoppað stutt á króknum í þetta skiptið..

en fréttirnar eru þær að áður en ég og Bjarni byrjuðum saman semsagt í byrjum síðasta sumars þá var ég bara ein hvorki með mann né barn..
svo kyntist ég Bjarna um mitt sumarið og þá vorum við tvö svo þegar ég kom frá Ástralíu þá kynntist ég dóttir hans sem er á 11 ári og núna þá erum við allt í einu að verða 4 manna fjölskylda eða 5 því mamma er alveg staðráðin í að ég geng með tvær stelpur hehe:haha:
við fórum í sónar á fimtudaginn þá gengin 11v og 5daga og þá sást nú bara eitt lítið kríli og það veifaði til okkar og var alveg á milljón allan tímann sem við horfðum á skjáinn;)
þannig að fréttirnar eru semsagt þær að ég geng með barni sem mér finnst mjög skrýtið og það er meira að segja komin smá kúla :lol:
allir eru að sjálfsögðu mjög spenntir og er barnið væntanlegt í heiminn 7  okt 2008;)
ætlaði bara að deila þessu með ykkur kæru vinir..
fáið meiri fréttir seinna
kv ása birna og bumbuskonsan:haha:



» 13 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 22:00:41 / steisarinn

afmælishelgin....

jæja Berglind mín þessi færsla er bara fyrir þig:p;)

afmælishelgin var bara mjög fín fórum að flytja draslið mitt úr mosó heim í breiðholtið fengum bilinn hans pabba lánaðann.. síðan fórum við Thelma í mat til grétu og Jóa og fórum síðan að horfa á Eurovision Birta vinkona Thelmu kom síðan heim og fékk að gista hjá okkur og leigðum við spólu bökuðum 2 kökur og höfðums ekta stelpukvöld og skemmtum við okkur feiki vel:haha:

síðan á sunnudeginum þá kíktum við á mömmu og Grétu í kolaportið og fórum svo í afmæli til Ármanns litla..
um kvöldið fórum við Bjarni síðan með bróðir hans og konu út að borða á Silfur 7 rétta matseðill og flottheit8) ekkert smá góður matur og vorum við ekki komin heim fyrr en eftir miðnætti vorum svo lengi að borða þetta allt saman:lol:

svo endaði þetta allt saman á góðu nuddi frá mínum heittelskaða;)

en fréttirnar sem ég held að Berglind sé að bíða eftir koma eftir 2 vikur:haha:

segi meira seinna......!!!!!
later
ása birna



» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 15:17:19 / steisarinn

24 ára...

já þá er maður að verða 24 ára á semsagt afmæli á morgun8)

það er búið að vera nóg að gera hjá okkur skotuhjúunum undanfarnar vikur og segi ég meira frá því seinna;)

fórum í bío á mánudaginn sáum no country for old man mjög góð mynd ;)
fórum svo eftir það í smá göngutúr og síðan í sund í gær..  smá afslöppun sem veitti ekki af komum heim og þá fékk ég rosa gott nudd ;) gott að eiga góða að....

núna um helgina eru mamma og pabbi að koma og við Thelma ætlum að gera eitthvað með þeim þar sem Bjarni þarf örugglea að vinna eitthvað svo er afmæli á sunnudaginn nóg að gera svo sem..

heyri í ykkur vonandi sem flestum á morgun...:d
kv
ása birna


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 22:15:56 / steisarinn

hvað er málið með ísland í dag...???

já ég segi nú ekki annað hvað er málið með íslandið okkar nú orðið allt að verða brjálað...unnum 2 leiki á Em áttum að vinna Spán en nei náðum að klúðra því eins og öllu öðru samt er ég mjög stollt þannig séð af strákunum okkar þeir stóðu sig alveg ágætlega þessar elskur en samt áttum að vinna síðasta leik....:^)

svo er það þetta með þennan blessaða pirring á þjóðinni með borgarstjóraskiptin ég er persónulega mjög sátt við nýja borgarstjórann okkar enda kaus ég F listann8)

en ég bara skil ekki öll þessi mótmæli og alla geðveikina í kringum þetta allt saman ég skil samt alveg að fólk sé pirrað út í allt þetta bruðl með peninga og annað en so what!!!! leyfum 'Ola að njóta sín smá leifum honum að prófa hvort hann geti staðið sig í þessu kallinn ég styð hann allavega :haha:

 

jæja nóg um það... það er enþá brjálað að gera í vinnuni og er maður að vinna bara og vinna eins og brjálæðingur ekki annað hægt þar sem maður var nú að kaupa sér eitt stykki bíl beint úr kassanum Toyota Corolla mm luxury 2008 ekkert smá flottur bíll kom með öllu nema leðri og topplúgu það er án spaugs allt í honum nema þetta tvennt og er alveg þrusu gott að keyra kaggann meira að segja Bjarna líst vel á hann þá er nú mikið satt og er slegist stundum um að fá að keyra8)

svo erum við nú að fara til Spánar í Mai með stelpuna þannig að maður þarf nú að eiga einhvern gjaldeyri fyrir það ætlum að fara til Biddu frænku og vera hjá henni í 2 vikur þannig að maður þarf ekkert að splæsa í hótel og svona mjög næs;)

fórum í sund í morgun sintum 6 ferðir á mann og vorum við alveg búin eftir það en djö... var það gott eftir á fórum svo í gufu og svona og svo heim að horfa á leikinn og erum búin að slappa af bara í allan dag með tærnar upp í loftið 8)

jæja segi þetta gott í bili  ætlaði bara að henda inn smá bloggi svona til að gera eitthvað af viti í dag;)

later

ása birna 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 19:42:00 / steisarinn

Árið 2008

HæHó og Gleðilegt ár allir saman8)

Áramótin voru bara mjög góð að vanda tengdó kom og sótti mig heim og við fórum til Óðinns bróðir Bjarna og fjölskyldu hans í mat ekkert smá góður matur... horft var á skaupið og skotið upp böns af flugeldum við skötuhjúin vorum komin heim eitthvað að ganga 3 þurftum bæði að vinna daginn eftir..:$

vinna vinna vinna alla helgina nætur og kvöldvaktir annars er eitthvað lítið búið að plana í þessum mánuði ætlum samt að reyna að fara norður fljótlega í jan eða feb..

svo gáfum við Thelmu í jólagjöf ferð til Malaga á Spáni ætlum að fara að heimsækja Biddu frænku og strákana hennar förum í mai og þvílikur spenningur er komin í mann séstaklega Thelmu;)

en jæja ætlaði nú bara rétt að kasta smá áramóta kveðju hér

nýjar myndir eru líka komnar inn frá Skid Row tónleikunum, brúðkaupinu,áramótunum og fleira ef þið farið í eina af ástralíu möppunum og svo í ásabirna public gallery þar eru eh nýjar myndir og restin er síðan  í möppu merkt ása og Bjarni :haha: enjoy....

kv ása birna


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 19:14:44 / steisarinn

Gleðilega hátíð...

Jæja þá eru Jólin gengin í garð og núna bíður maður bara eftir áramótunum...

það sem maður hefur ekki bardúsað síðustu daga er fátt skal ég segja ykkur...

helgin 14-16 Des var alveg brjálað að gera 14 fór ég í förðun og greiðslu niður á stofu var orðin svaka skvísa þegar einkadriverinn minn þá helgi kom og sótti mig við sóttum síðan Ragnheiði og svo lá leiðin niður í skeifu þar sem Jólahlaðborðið hjá Staffinu í Öskjuhlíðarskóla var haldið og veislustjórinn var engin önnur en ÉG :haha:

kvöldið heppnaðist mjög vel og stóð ég mig með miklum sóma eins og ég heyrði fólk segja í vinnuni á mánudeginum;) allir mjög stoltir af mér;)  við fórum síðan nokkur saman á Broadway seinna um kvökdið og síðan niðrí bæ...

daginn eftir í þynnkunni var síðan drullast fram úr rétt um hádegi enþá svona létt í því hehe tók mig til skellti í mig smá að borða og kom einkadriverinn minn svo og keyrði mig eitthvert lengst upp í garðabæ þar sem var verið að fara að gæsa hana Ástu dagurinn var yndislegur og allt fór sómasamlega fram að hluta til allavega:P

fór ég síðan norður 21 des og hélt Jólin með fjölskyldu minni fékk fullt af flottum gjöfum þurfti síðan að leggja af stað á jóladag suður því spáin var ekki góð daginn eftir þannig að var mátulega komin suður í hangikjet til tengdó og brá öllum þegar ég birtist baraengin vissi neitt held samt að Bjarna hafi brugðið mest nýbúin að tala við hann í síma og sagðist enþá vera á króknum hehe

lenti nú samt í smá blindbyl á leiðinni en hvaða gamall lærður sveitamaður getur ekki bjargað sér út úr því;) Brúðkaup í gær 26 des hjá ástu minni og Agli æðislegt brúðkaup og geisluðu þau svo mikið og voru svo falleg að maður táraðist næstum því að horfa á þau;)

nú er bara rólegheit frí um helgina hjá Bjarna og ætla ég að liggja með fætur upp í loft og gera sem minnst;) 

ágætu vinir og kunningjar takk fyrir frábært ár þetta er held ég mitt allra besta ár til þessa vonandi verður það næsta enþá betra 8) hlakka til að sjá ykkur kveðja ása birna:lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 15:09:32 / steisarinn

Jólaundirbúningur;)

 

 Jæja þá eru bara 2 vikur til Jóla og mín á fullu að gera allt klárt er búin að kaupa allar jólagjafir og er hálfnuð við að pakka þeim inn:haha:

um helgina fórum við Thelma norður á Krókinn bara 2 saman skildum Bjarna eftir heima;)

á föstudeginum leigðum við spólu og keyptum glás af nammi og horfðum á video með Tönju Mjöll á laugardeginum vöknuðum við eldsnemma og fórum að bæjast kíktum í kaupfélagið og tískuhúsið fórum svo heim og skárum í laufarbrauð allan daginn rosa stuð;) held að öll fjölskyldan hafi verið komin þarna öll á endanum að skera í :$

pöntuðum pizzu og svo fóru stelpurnar að mála á piparkökur:D síðan léku þær sér saman langt frameftir og á sunnudeginum var slappað af og látið stjana við sig á hótel Mömmu/ömmu..

vorum komnar í bæinn rétt fyrir kvöldmat þá fórum við stöllur að skreyta hér heima gerðum allt rosa fínt og fórum svo að pakka inn nokkrum gjöfum:P

núna erum við að fara að baka og svo ætlar Thelma að koma á morgun með vinkonu sína að skreyta;)

leyninvina vika var að byrja í vinnuni í dag ég er með mjög svo krefjandi vin... en á samt mjög góðan leynivin sem gaf mér 2 kertastjaka og kerti;)

allavega er farin að baka8)

later

ása birna í Jólaskapi:P:lol::haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 22:06:20 / steisarinn

Séð og Heyrt...

jæja altaf brjálað að gera á þessum bæ... vinna og vinna svo inn á milli er slakað á farið í göngutúra og í sund;)

annars er bara allt gott að frétta ég vildi bara láta ykkur vita að það er viðtal við okkur og fullt af myndum í nýjasta séð og heyrt blaðinu við erum meira að segja á forsíðu blaðsins ekki slæmt það svo ég hvet ykkur öll til þess að skjótast út í búð og kaupa eitt eintak eða svo því þetta eru alveg magnaðar myndir og ekki á hverjum degi sem maður er í séð og heyrt;)

fór í smá aðgerð á föstudag og er enn að jafna mig ligg bara í móki upp í rúmi og búin að horfa á flestallar myndirnar sem ég á í tölvunni og sef þess á milli Bjarni búin að vera að vinna alla helgina þannig að ég er bara búin að vera að mygla hérna heima vonandi að maður fari að komast á fætur fljótlega svo maður verði nú orðin góður fyrir Skid Row tónleikana næstu helgi:haha:

Fleiri myndir frá Ástralíu komnar inn;)

stutt í dag meira seinna...

later

ása birna


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 18:26:08 / steisarinn

myndir frá Ástralíu

Fullt af nýjum myndum frá Ástralíu í ástralía 2007 djamm endilega tjekkið á því svo er ég að setja inn myndirnar frá nágranna túrunum og kvöldunum myndir af okkur með Stingray,Dylan, Dr. Karl janelle,libby, Connor, Steve Parker, og Susan myndir af okkur með þeim í eftripartýi í VIP herberginu hehe svo eru að fara detta inn myndir af walking tour í melbourne dýragarðinum heimsókn á mörgæsa,kengúru og kóalabjarna slóðir þetta er allt að koma hjá mér loksins smá tími til að setja þetta inn;)

njótiði vel og ekki vera mjög öfundsjúk hehe ;) 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 09:45:37 / steisarinn

síðustu dagar....

 

jæja kanski komin tími til að skrifa eitthvað smátterí hérna..

búið að vera svo brjálað að gera undanfarið eins og altaf aldrei tími til neins..:^)

þarsíðustu helgi var Thelma hjá okkur og þurfti Bjarni að vinna á laugard þannig að ég og Thelma fórum í bío á Hairspray og skemmtum við okkur konunglega:haha: fórum svo í sund þar sem farið var nokkrar ferðir í rennibrautina hehe:P síðan pöntuðum við okkur pizzu tókum okkur mynd spiluðum og höfðum það kósi:D Bjarni kom svo heim um miðnætti og þá skellti ég mér með Hörpu Dögg á Von á Players og hitti þar nokkra glaðlynda Húsvíkinga:haha::P

á sunnudeginum fórum við svo á Skauta og elduðum svo dýrindis mat:lol: mögnuð helgi bara í alla staði.. síðasta helgi vorum við bæði að vinna sumir lengur en aðrir... og var því lítið gert leigðum okkur Mýrina á sunnudagskv snilldar mynd..

á mánudagskv var síðan foreldrakvöld í Engjaskóla og fórum við Bjarni með Skúffuköku ala ása birna og snittur sem kokkurinn lagaði:haha: og horfðum á Thelmu sýna leikrit svo var farið í leiki limbó og fleira mjög skemmtilegt kvöld skrýtið samt að fara á svona kvöld sem "foreldri" en ekki vera að sjá um þetta sem kennari en bara gaman að þessu:lol:

fór að vinna í nýju aukavinnuni minni í gær ágætis fólk bara að vinna þarna mjög fínn staður;)

svo í dag er það Trimmform og matarboð það á að elda eitthvað krassandi handa mér er orðin spennt að vita hvað það verður aldrei að vita nema maður fái sér einn tvo kalda með þar sem vetrarfrí er á morgun og fer ég ekki aftur í vinnuna fyrr en 6 nóv8|8)

Planið er að fara á djammið á föstudagksv stelpurnar að hittast í hafnarfirðinum og taka eins og eitt stelpu djamm komin tími til8)

En Guðný mín til hamingju með litlu stelpuna vonandi fæ ég að sjá hana sem fyrst:D

kv ása birna

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 14:56:56 / steisarinn

myndir frá Ástralíu

jæja þá eru nokkrar myndir komnar inn frá ferðinni ég er svo sjaldan heima í tölvunni að þetta gengur frekar hægt en ég ætla að reyna að klára þetta um helgina að setja allar myndirnar inn vonandi tekst mér það;) svo á ég eftir að fá myndirnar frá Helgu og setja þær inn líka ;)

annars er bara allt gott að frétta það er enþá pínu erfitt að snúa sólarhringnum alminnilega við mér finnst ég geta sofið og sofið endalaust  hef td ekki getað náð að horfa á eina heila mynd með Bjarna sofna altaf þegar ég leggst niður í sófann honum til mikillar ánægju eða þannig hehe;) en þetta fer vonandi allt að koma...

fór síðustu helgi með Bjarna og dóttir hans í göngutúr í Elliðarárdal fyrsta skiptið sem ég fer þangað mjög gaman að fara þetta fengum líka yndislegt veður;)

annars er maður bara búin að vera að vinna og vinna.. læt heyra í mer betur seinna ;)

Góða helgi...

kv ása þreytta;Þ 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8